Matarholur og önnur matargöt

Matarupplifun í byrjun árs 2010.

Ágætu lesendur Miðjunnar það er mér mikill heiður að fá að vera með í þessu nýja heilbrigða og gefandi samfélagi. Þar sem að þetta er fyrsta færslan mín hér og örugglega ekki sú síðasta vil ég þakka fyrir að fá að vera með og óska aðstandendum Miðjunnar til hamingju. Ég hef verið að skrifa um mat og menningu í þó nokkurn tíma, nú síðast á Moggablogginu en hef ekki sett neitt þar inn í nokkurn tíma….einhvern veginn hvarf sköpunargleðin þar….Á næstunni hef ég hugsað mér að færa eitthvað af Moggabloggfærslunum mínum hér yfir. Hér er gamla bloggið mitt.

Við hjónin höfum verið svo heppin að fá að að taka þátt nú í þriðja sinn í því sem við köllum “ Matarupplifun ársins” en að kvöldi nýársdags fórum nýársgalaveislu Friðriks V. Þegar ég fer út að borða hef ég oft með mér litla skrifblokk og myndavél sem ég og gerði einnig í þetta sinn en myndavélina þurfti ég ekki að nota því að ég var svo heppin að hafa fagmann við okkar borð, Finnboga Marinósson ljósmyndara með alvöru myndavél, hann bauðst til að mynda alla réttina sem hann og gerði með glæsibrag að vanda. Það var einstaklega fallegt veður á nýársdag, snjór yfir öllu, -16 stiga frost, norðurljós og það brakaði í snjónum er við gengum inn á hlýjan veitingastaðinn hjá Friðriki, Öddu konu hans og þeirra börnum. Eftir fordrykk og gott spjall var öllum boðið til sætis. Á þessum kvöldum leyfir Friðrik V. sér að gera tilraunir og prófa hluti sem hann hefur ekki gert áður eða haft tilefni til. Hann kynnti alla réttina, hráefnið,hugmyndina á bakvið réttina og hvaðan hráefnið kom, Arnrún Magnúsdóttir konan hans Friðriks kynnti vínin. Milli flestra rétta voru bornar fram litlar mismunandi nýbakaðar brauðbollur afar góðar og á borðinu var kryddsmjör.

FM_86935

Smakkréttirnir góðu

Það fyrsta sem fram var borið voru þrír smakkréttir á umhverfisvænum diski sem hann kallaði samvinna Íslands og Asíu. Djúpsteikt saltfisk sushi, Dim sum með hráu hangikjöti og svínahamborgarhryggssneið sem soðinn var í roner á 54 gráðu hita (Roner er tæki sem sýður vatn undir þrýstingi og gerir kleift að sjóða við lægra hitastig, með því tapast minni vökvi úr hráefninu, en oftast er maturinn eldaður í vacuum poka og talsvert lengur en annars tíðkast) Kjötinu var síðan vafið utan um epli sem var búið að marinerast í sake og rauðrófusafa. Fínar hugmyndir og komu gestunum í gírinn og forvitnin jókst, saltfisksushiið kom verulega á óvart og var mjög gott.

Hornafjarðarállinn háll sem áll

Hornafjarðarállinn háll sem áll

 Svo var komið að fyrsta rétti, heitreiktur áll úr lóninun við Hornafjörð með blómkálsmauki og á sama diski álasúpa í bolla, állinn og blómkálsmaukið með örlítilli sætu pössuðu vel saman og runnu ljúflega niður. Með fyrstu tveimur réttunum fengum við sama hvítvínið sem ég hef því miður ekki skrifað hjá mér en ég nálgast þær upplýsingar og bæti þeim við hér. Hvítvínið sem kom með næstu tveimur diskum var frábært og passaði mjög vel við réttina, Viogner. Rionel 2007 Ástralía.

Andabringur og kerlingareyra

Andabringur og kerlingareyra

 Þriðji diskur…og gleðin og spennan í algleymingi….. á honum fengum við áhugaverðan og frumlega samsettan rétt, skemmtileg áferð og bragðið gott, andarbringur marineraðar í sesamolíu með vagame salati sem er Japanskt salat með marineruðum þara (Tahimi seseamolíu) þarinn heitir kerlingareyra með voru tvær tegundir af sósum paprikusósa og fíflahunangs og rabbabarasósa allt saman hágæða norðlenskt hráefni….vá ! hvað gerist næst hugsaði maður þegar hér var komið við sögu.

Humar Ravioli

Humar Ravioli

Diskur númer fjögur. Humar Ravioli með íslenskum villtum kryddjurtum, trufflusveppaolíu,ferskum spergli og hvítvínseggja sósu. Humarinn kom frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og veiddur á Frímerkinu, þetta var frábær réttur sem náði manni vel og maður naut þess að finna þessa skemmtilega samsetningu leika við bragðlaukana.

Rjúpsúpa - Rjúpubringur

Rjúpsúpa - Rjúpubringur

Nú komu Adda og þjónarnir með ískaldan Stout frá Viking á Akureyri, Stout er ósíaður svart eða dökkbrúnt öl sem inniheldur hátt hlutfall ristaðs korns. Oft er um sætan og mjög maltaðan bjór að ræða en einnig eru þeir til rammir og þurrir. Allir fengu glös með klaka í og þannig áttum við að drekka hann með næsta rétti. Bjór með klaka ? á okkar borði og að öllum líkindum á hinum borðunum líka veltu menn vöngum bæði yfir því að fara drekka bjór með klaka og hvaða réttur væri næstur. Bjórinn var frábær og hugmyndin með klakann dálítið mögnuð. Einhver á okkar borði giskaði á rétt að næsti réttur væri Rjúpa, þessi réttur var svo góður og negldi mann alveg niður í stólinn en sendi mann jafnframt upp í hæstu hæðir. Hægelduð rjúpnabringa á súpudiski og bringan var í súpunni sem var mjög góð m.a var mysingur í henni.

Krækiberjasorbet

Krækiberjasorbet

Nú kom Axel sonur Friðriks og Öddu ogkynnti næsta rétt sem var krækiberjasorbet borið fram á klaka, klárlega besti sorbet sem ég hef fengið svo passlegur í alla staði, ískaldur, ekki of sætur, berjabragð gott og ferskt og hóflega stór.

Nautalund með kjúklingalifur, heitreykt í heyi

Nautalund með kjúklingalifur, heitreykt í heyi

Næst var kröftugu Glen Carlou 2005, Shiraz rauðvíni frá Suður Afríku hellt í glösin, vínið var fallegt á litinn og ilmaði einstaklega vel og enn fór hugurinn af stað og gestir veltu fyrir sér hvað kæmi næst. Næsti diskur var það sem mætti kalla aðalrétt, nautalund frá Breiðabóli á Svalbarðströnd slátrað 22/12 2009 og hékk í 9 daga, kjötið var heitreykt í heyi frá sama bæ, borið fram með möndlukartöflum frá Gröf II í Eyjafjarðarsveit, borið fram með kjúklingalifur sem var velt upp úr fínu hveiti og steikt upp úr andalifur, sósan búin til úr soði af beinum úr nautgripnum. Þessi réttur var svo skemmtilegur og hreinlega bráðnaði uppí manni og þegar vínið bættist við var líkt og að straumur færi um mann, algjör snilld.

Djúpsteiktur Camembert í kryddbrauðraspi

Djúpsteiktur Camembert

Nú fengum við Amaretto líkjör frá Luxardo og í kjölfarið disk með djúpsteiktum Camenbert osti, raspið utan um ostinnvar búið til úr kryddbrauði, borið fram með ristuðu litlu brauði, krækiberjahlaupteningum og Akar Akar sósu, þetta var réttur sem maður hefur borðað áður enda sagði Friðrik það en hann hefði viljað hafa hann með af því að hann væri svo sjaldan orðið á matseðlum.

 

Svarti kassinn - Sex eftirréttir - sex álfur

Svarti kassinn - Sex eftirréttir - sex álfur

Nú var hellt alveg frábæru eftirréttavíni í glösin Latest Harvest,Sauvignion Blanc 2007 og í kjölfarið kom svarti kassinn sem innihélt sex mismunandi eftirrétti. Þeir feðgar Friðrik og Axel settu þetta skemmtilega box saman og ákváðu að horfa til sex heimsálfa, Evrópa – Cremebrulle, Suður Ameríka – Súkkulaðimús, Asía – Saffran og rósablaða ís, Norður Ameríka – Ostakökufroða, Ástralía – Ávaxtasalat, algjör unaður allt saman, alveg fullkomið 10 +

Heimagert konfekt

Heimagert konfekt

…en hér var nú ekki allt búið, nú var komið að kaffinu og eðlilega skrifaði ég ekkert hjá mér um það að því að ég kann enn ekki að drekka kaffi en mig minnir að það hafi heitið Búgí…..sel það ekki dýrara en ég keypti það. Á borðið komu svo átta tegundir af heimagerðu konfekti, laufabrauð með flórsykri og hnetukarmellur. Á milli rétta fengum við hágæða tónlistaratriði en ein besta söngkona landsins Margrét Eir setti punkta yfir frábæran mat, þjónustu ogumhverfi með fallegum söng , með henni spiluðu og sungu Jökull Jörgensen, Birkir Rafn frá Skagaströnd og Hemmi Ara frá Akureyri sem að Margrét Eir kallaði réttilega Richard Burton. Gestir settust að borðum klukkan 19.00 og stóðu upp um klukkan hálf tvö um nóttina….. bara gott…. bara skemmtilegt og bara forréttindi. Þessi kvöldstund var hrein unun í alla staði þjónusta, skemmtiatriði, matur og vín, viðmót allt 100%…..og undrin sem gerast hjá snillingunum í eldhúsinu er engu lík og enginn nema sá sem upplifir getur verið með í umræðunni. Fagmennskan í fyrir rúmi. Þúsund þakkir fyrir mig og mína.

9 Athugasemdir við Matarupplifun í byrjun árs 2010.

  1. 25. janúar 2010 klukkan 16:00 | Permalink

    Ég fagna því að þú sért farinn að skrifa aftur! Til hamingju með nýja heimilið! :-)

  2. 25. janúar 2010 klukkan 18:07 | Permalink

    Mmm.. þetta er allt allt allt annað! Flottur texti um girnilegan mat! Þessi veisla hefur greinilega verið eðall.

  3. Þórgnýr's Gravatar Þórgnýr
    25. janúar 2010 klukkan 21:54 | Permalink

    Ja hérna – dásamlegt alveg hreint!

  4. Kristín Sigursveins's Gravatar Kristín Sigursveins
    25. janúar 2010 klukkan 22:36 | Permalink

    Gaman að sjá þig hér á Miðjunni. Frábær færsla og nú held ég svei mér þá að ég láti verða af því að fara í næstu nýársveislu. Takk.

  5. 26. janúar 2010 klukkan 08:17 | Permalink

    Til hamingju með nýju síðuna, lítur afar vel út :)

  6. Jónína Dúadóttir's Gravatar Jónína Dúadóttir
    26. janúar 2010 klukkan 08:35 | Permalink

    Frábært :)

  7. Guðmundur's Gravatar Guðmundur
    26. janúar 2010 klukkan 22:06 | Permalink

    Þetta hefur verið glæsilegt að vanda. Ég hefði gjarnan viljað vera þarna og njóta með ykkur :)

  8. Þóra Fríður's Gravatar Þóra Fríður
    28. janúar 2010 klukkan 10:09 | Permalink

    Til hamingju Júlli! Það verður spennandi að fylgjast með þér á þessari síðu.

  9. Ella Rósa's Gravatar Ella Rósa
    7. apríl 2010 klukkan 16:24 | Permalink

    Ég sit hérna slefandi :) ) Svo gaman að borða svona góðan mat og smakka eitthvað nýtt. Ég man ennþá eftir besta sorbet sem ég hef smakkað.Það var gin og lime ( minnir mig) og var einmitt hjá Friðriki V. En ég smakkaði eitt gott núna rétt fyrir páska á einum ágætum stað hér í Aarhus og það var rauðrófusorbet. Úr ferskum rauðrófum.Afskaplega gott,sætt en með svona jarðarbragði eins og er af ferskum rauðrófum.Og svo var það svona fallegt á litinn líka :) Það var eitt sem ég vildi spyrja um,hvað var eftirrétturinn frá Afríku í kassanum.Þú skrifaðir bara 5 af sex heimsálfum og gleymdir aðal álfunni :) ) Bestu kveðjur frá Aarhus.
    p.s. Ég er búin að smakka allt úr kassanum frá þér og allt alveg rosalega gott :) Ég er alltaf með augun opin hér og er búin að ákveða hvað ég kem með handa þér í sumar :)

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Um höfund

Júlíus Júlíusson, Áhugamaðurinn skrifar hér um mat og menningu í víðum skilningi. Júlíus er framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík og er fæddur 2. febrúar á því herrans ári 1966 mitt í brjálaðri norðan stórhríð. Giftur Grétu Arngrímsdóttur og eiga þau þrjú börn. Í húsi áhugamannsins er að finna allflest venjuleg herbergi þó svo að eldhúsið og leikhúsið heilli mest.

Efnisorð