
Margir eru eflaust spenntir fyrir helginni vegna handboltans og eiga erfitt með að einbeita sér að öðru. Til þess að lifa þetta af er hér gott ráð. Það er nefnilega þannig með mig að þau skipti sem ég hef horft á hina frábæru mynd Ratatouille frá Pixar (2007) fæ ég matreiðslutilraunafiðring og er kominn í eldhúsið til að elda eitthvað áður en að myndin er búin, það er ekki til betri staður til að slaka á og láta tímann líða. Þessa helgi er eldhúsið sennilega eini staðurinn sem hægt er að gleyma sér á og safna kröftum fyrir úrslitin. Nefnilega á sunnudagskvöldið verður allt vitlaust á “Íslandinu góða” af fögnuði og líklegt að jafnvel fátækustu námsmenn gúffi í sig hverjum gullhúðaða eftirréttinum á fætur öðrum. Eftir helgina verður allt í gúddi hér á landi, “strákarnir okkar” koma með fullt af gulli heim og rétta skútuna við. Semsagt best að halda sig heima í eldhúsi og sleppa öllu randi og djammi um kvöldin þ.e.a.s fös og lau. Fyrir leiki og á milli leikja er best að eyða tímanum heima í eldhúsinu, elda og dunda sér við matreiðslu og tilraunir og því ekki að elda róandi Ratatouille. Annars fjallar myndin um rottuna Remy sem lifir á rusli með fjölskyldu sinni á sveitabýli, en ólíkt flestum hefur hann stóra drauma; hann þráir það heitast að verða kokkur. Örlögin stía honum og fjölskyldu hans í sundur og hann endar á veitingastað átrúnaðargoðsins síns, kokksins Gusteau, sem er í París. Þar kynnist hann hinum klaufalega strák Linguini, sem er ekkert sérlega fær í eldhúsinu, saman slá þeir í gegn.

Flestir vita að Ratatouille er grænmetisréttur sem er frá Provence í Frakklandi. Hann inniheldur tómata, kúrbít, eggaldin, papriku og lauk. Grænmetið er látið malla í ólífuolíu og er galdurinn við ekta ratatouille sá að setja grænmetið út í blönduna í réttri röð og láta hæfilegan tíma líða á milli, svo að allt fái rétta suðu. Það eru skiptar skoðanir um suðutíma, hvort að allt sé soðið saman eða hver grænmetistegund fyrir sig og síðan blandað saman. Stundum er hvítlaukur, chillialdin eða ólífur soðnar með, sumir krydda með ferskum kryddjurtum, basil, timian eða lárviðarlaufum, stundum er grænmetið grillað til að fá grill/reykbragð af maukinu. Í nokkrum löndum eru síðan til ýmsar útgáfur af svipuðum réttum t.d Sikileysk peperonata og Tyrknesk útgáfa sem borin er fram með hvítlaukskryddaðri jógúrt, grískt melitzanes medomata með miklum hvítlauk og tumbet frá Majorka, sem inniheldur mjöllitlar kartöflur í þunnum sneiðum. Ratatouille er borið fram með ýmsum kjöt- og fiskréttum, svo sem laxi eða skötusel, eða sem forréttur eða smáréttur með nýbökuðu brauði. Það hentar einnig vel með eggjaköku eða pasta eða jafnvel ofan á pitsu. (Heimildir m.a Matarást Nönnu)
- Aftur á forsíðu
