
Það er alltaf gott og orkugefandi að koma í leikhúsið á Akureyri, einhvern veginn er þetta svona alvöru leikhús, gamalt með mikla sál og sjarma. Um leið og þú sest finnur þú frið og lokar á allt gjálfrið fyrir utan. Ég er ekki frá því að leikhúsið og hvað þá góð sýning hafi læknandi áhrif. Á fjölunum hjá Leikfélagi Akureyrar núna er hinn bráðskemmtilegi og margverðlaunaði gamanleikur 39 þrep eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan í leikstjórn leikhússtjórans Maríu Sigurðardóttur sem svo sannarlega hefur unnið heimavinnuna sína. Hér segir frá glaumgosanum Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar,en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás. Leikararnir eru fjórir og takast á við 139 hlutverk á 100 mínútum og gera það virkilega vel. Það er algjör unun að fylgjast með notkun þeirra á nýjum sem gömlum, minna sem meira notuðum leikhúsbrellum. Leikmyndin er einföld, snyrtileg en alveg fullkomin fyrir verkið og rýmið, lýsing og hljóð mjög góð og notað á skemmtilegan máta og rúllar vel í takti við gang leiksins. Björn Ingi Hilmarsson sem leikur Richard Hannay skilar James Bond leikhússins mjög vel, sannfærandi, ljúfum, saklausum, dularfullum en samt ekki. Sennilega er þetta erfiðasta hlutverkið þó svo að hann skipti ekki um hlutverk eins og hinir leikararnir þurfa oft að gera, og þess vegna tel ég það erfitt ….að þurfa að leika á móti svona mörgum bráðfyndnum, skondnum og margbreytilegum persónum. Konurnar í verkinu leikur Þrúður Vilhjálmsdóttur og tekst vel upp, þvílíkur hreimur sem hún nær og sem bóndakonan er hún óborganleg, hefði viljað hafa hana örlítið meira rómantískari eða ástfangnari í lokin. Atli Þór Albertsson og Jóhann G Jóhannsson leika “helvítis helling” eins og maðurinn sagði, þvílíkt maraþon og þvílíkur fjöldi af alveg hreint ótrúlegum persónum, algjör snilld og þeir gera þetta alveg uppá 10 og Jóhann uppá 10 +. Sýningin rúllar vel, er skemmtileg, spennandi og ég hafði það á tilfinningunni að áhorfendum liði vel og ástæðan fyrir því var að fólkið í leikhúsinu jafnt á sviði sem baksviðs léku og unnu sýninguna af ánægju og höfðu gaman af og það skilar sér fram í salinn og alla leið heim og á kaffistofuna í vinnunni daginn eftir. Það ætti að vera skylda að taka inn gleðilyfið 39 þrep, eitt skipti dugar en fleiri inntökur eru sannarlega leyfilegar og auka bara áhrifin. Ef þú mátt ekki hlæja samkvæmt læknisráði skaltu ekki fara á sýningu hjá LA, fyrir hina fást lyfseðlar hjá Leikfélagi Akureyrar og á miði.is.
Takk fyrir mig
- Aftur á forsíðu
