Laugardagskvöldið 27. febrúar s.l var ég svo heppinn að vera boðið með á á pungakvöld á Akureyri. Kvöldið var nú haldið í þriðja sinn að ég held og var staðsetningin vélaverkstæði og eingöngu karlmönnum boðið. Allt saman snyrtilegt og lagt á borð sem var með Kawasaki tjaldi yfir og mikil stemmning og karlhormónar í loftinu. Þarna voru samankomnir á milli 20 – 30 fílefldir karlmenn…(Nánast allir)

Soðnir hrútspungar í slíðrinu
Mjög margir úr hópnum eiga ættir að rekja á Kleifarnar í Ólafsfirði, sem er eins og himnaríki á jörð vestan megin í firðinum gegnt byggðinni í Ólafsfirði. Margir þeirra eru þekktir fyrir einstaklega góðar, vel unnar íslenskar afurðir t.d hákarl, harðfisk, villibráð og hágæðalambakjöt þar sem að allt er nýtt í topp. Á pungakvöldinu að þessu sinni voru soðnir ferskir hrútspungar í slíðrinu og reyktir án slíðurs, laufabrauð, íslenskt smjör, harðfiskur, hákarl, reyktar gæsabringur, grafin önd, hrátt vel hangið hangikjöt beint af lærinu, þrjár sósur og kartöflustappa.

Reyktir hrútspungar á slíðurs
Mér skilst að það sé mikil vinna við að hreinsa, raka og sauma pungana og það sé ekki fyrir hvern sem er að gera það. En mæður sumra karlmannanna í hópnum kunna víst þetta fag betur en nokkur annar. Pungarnir eru svo mikið sælgæti að ég sit hér með vatn í munninum þegar ég er að reyna að koma þessu á blað. Ég hef smakkað þessa fersku áður og vissi hvað þeir eru hrikalega góðir. En aftur á móti þá var ég að bragða á þessum reyktu í fyrsta sinn og og ég get ekki annað en gefið þeim 10 í einkun, hóflegt og gott reykbragðið minnti á gott hangikjöt.

Kartöflustappa, 2 x pungar, reykt gæsabringa, grafin önd og hákarl
Öndin og gæsin voru mikið lostæti. Hákarlinn sem að Óskar snillingur Finnsson í Ólafsfirði gerir betur en nokkur annar er einstakur og fengum við að njóta hans á þessu frábæra hlaðborði. Þetta var góður og skemmtilegur hópur karlmanna, sem eru miklir véla, vélsleða, hjóla, trukka, gröfu, veiðimenn og næstum allir tækjaóðir snillingar. Það voru margar góðar sögur sagðar, allar sannar, engar ýktar og allir höfðu gaman af. Ég er bara upp með mér að mér hafi verið boðið og vonast til þess að það hafi ekki verið í þetta eina sinn.
Takk kærlega fyrir mig J.J.
- Aftur á forsíðu

Vá.. þetta er ekkert smá athyglisvert! Ég verð reyndar að viðurkenna að ég er ekki viss hvort ég hefði geta lagt mér þetta til munns, tek þín orð trúanleg hvað það varðar
Sæll Júlli,mér finnst yndislegt að lesa allar þínar síður hér á netinu.Þakka þér fyrirbænasíðuna, kveikja á kerti o.fl. En ég hefi mikinn áhuga á mat og mataruppskriftum. En nú langar mig að spyrja,er hægt að fá keypta reykta púnga einhvers staðar, ég er svo viss um að þetta er lostæti.
Kærar kveðjur,
Geirþrúður (Geigei)
Það er sem eg hef alltaf vitað – þú ert hugrakkur maður!! Þetta hefur verið skemmtileg upplifun, það er ljóst og gaman fyrir svona matmann eins og þig að komast í þennan fagnað – og ekki hafa karlhormónarnir spillt fyrir
knús og kram frá DK <3<3